Viðauki 2: Að upplifa Guð

Þú hefur skapað okkur fyrir þig, ó Guð, og hjörtu okkar hvíldarlaus þar til þau finna hvíld í þér.
Ágústínus frá Hippó

Lesið Biblíuna og biðjið á hverjum degi og þið munið vaxa, vaxa, vaxa!
Úr lagi fyrir börn

Við erum sköpuð fyrir samband við Guð og það er það sem sálir okkar þrá. Lærisveinar Jesú eru frelsaðir til þess að upplifa ríkt, náið og umbreytandi samband við Guð föðurinn í gegnum Jesú Krist og með mætti Heilags Anda. Að neðan er að finna tvær venjur sem munu hjálpa þér að upplifa Guð og vaxa með því að lesa Biblíuna og biðja.

Hjálpleg aðferð til þess að lesa Biblíuna á hverjum degi

Öll Biblían er orð Guðs, því að hún er innblásin af Heilögum anda. Hún kennir okkur sannleikann og bendir okkur á það sem rangt er í lífi okkar. Hún leiðréttir okkur og hjálpar okkur að gera það sem rétt er. Hún er verkfæri Guðs til að móta líf okkar og gera okkur hæf til að vinna það sem gott er.
2Tím 3:16-17

Til þess að við upplifum máttinn af orði Guðs er mikilvægt að við ekki aðeins lesum Biblíuna, heldur hugleiðum og notum einnig það sem við lesum. Við notum þessi 4 þrep til þess:

Lesa – Skoða – Nota – Biðja

Lestu orðið

  • Veldu bók í Biblíunni til þess að byrja að lesa, helst í Nýja testamentinu. Ef þú ert ekki kunnug/ur Biblíunni er gott að byrja á Markúsarguðspjalli.
  • Ekki lesa textann tilviljunarkennt heldur skipulega til þess að þú skilur samhengi versana og færð gott og jafnt fæði. Lestu hluta af textanum á hverjum degi og haltu áfram næsta dag þar sem frá var horfið.
  • Það er gott að lesa stóra texta úr Biblíunni en að gefa sér tíma til þess að hugleiða nokkur vers í senn og nota þau er mun betra langtímaaðferð.

„Hæg og skipuleg lesning gefur nákvæma leiðsögn.“

Skoðaðu orðið

  • Til hvaða manneskju er það skrifað? Af hverju? Um hvað snýst það?
  • Hvað held ég að það merki? Hvernig myndi ég útskýra það í mínum eigin orðum?
  • Hvað læri ég um Guð: Loforð hans og eiginleika?
  • Hvað læri ég um hvernig ég eigi að lifa lífinu: hvaða boð eða dæmi eru til að fylgja
  • Hvaða sannleiki sker sig úr fyrir mig persónulega og hvernig styrkist trú mín með þessum texta?

Notaðu orðið

  • Hvernig tengist þessi texti lífi mínu núna?
  • Hvað kennir þessi sannleiki mér, hvaða synd finn ég mig kallaða/n til þess að iðrast fyrir og hvaða skref þarf ég að taka til þess að hlýða sannleikanum í þessum texta?
  • Hvað mun ég byrja að gera og hverju mun ég hætta til þess að nota þennan texta í lífi mínu?

Biddu orðið

  • Talaðu við Guð um það sem þú hefur lesið. Biddu hann um vísdóm til þess að hjálpa þér að skilja og fyrir styrk og hugrekki til þess að lifa þessum sannleika.
  • Notaðu þessa sannleika sem þú hefur lesið til þess að biðja fyrir sjálfri/um þér, fjölskyldu þinni, kirkjunni, fólki sem þekki Jesú ekki ennþá og heiminum.

Til þess að fá sem mest út úr tíma þínum er gott að taka frá svipaðan tíma á hverjum degi. Þar getur þú haft glósubók og penna til þess að skrifa niður hvað sem er hjálplegt að muna og hugleiða: lykilvers, hugleiðingar, hugsanir fyrir daginn, hvatningar Heilags Anda eða markmið.

Bæn

Einlæg og kröftug bæn réttláts manns megnar mikið.
Jak 5:16

Stækkaðu og auðgaðu bænalíf þitt með þessum skrefum:

Lofgjörð

Verðu tíma í að viðurkenna og upphefja Guð. Lofaðu hann fyrir það hver hann er og upplyftu honum ofar öllu öðru sem þú sérð, hugsar eða finnur á þessari stundu.

Játning

Játaðu fyrir Guði þau svið í lífi þínu þar sem þú hefur syndgað og mistekist að fylgja orði hans. Játaðu trú þína á Krist og þína nýju persónu í honum. Mundu þeir sem tilheyra Jesú Kristi verða ekki fordæmdir (Róm 8:1). Taktu á móti fyrirgefningu og þeirri gjöf sem hrein samviska og endurbyggt náið samband við Guð er (1Jóh 1:9, Heb 10:22).

Þakklæti

Þakkaðu honum fyrir sjálarhjálp þína, fyrir allt sem hann hefur gert bæði stórt og smátt og fyrir bænirnar sem hann hefur svarað upp á síðkastið.

Þarfir

Komdu með þarfir og beiðnir þínar til Guðs. Biddu fyrir þörfum annarra; fjölskyldumeðlima, vina, vinnufélaga og nágranna. Biddu fyrir þeim sem eru týndir og þurfa að taka á móti Jesú.