Þessi dalur mun fyllast vatni

„Þessi dalur mun fyllast vatni“ er vinnubók sem hjálpar okkur að vera verkfæri Guðs fyrir vakningu. Bókin kom fyrst út í maí 2026. Höfundur er Ágúst Valgarð Ólafsson.

Um bókina

Guð er að undirbúa vakningu á Íslandi.

Á Kotmóti haustið 2024 sagði Jon Tyson: „Ég hef aldrei séð land eins tilbúið fyrir vakningu og Ísland í dag.“ Þessi bók er svar við þeirri áskorun.

Ágúst Valgarð Ólafsson sýnir hvernig vakningar byrja alltaf á sama stað: þorsta eftir Guði, iðrun, brjóta meira land til ræktunar í lífi okkar og djörfung í bæn.

Með fimm einkennum vakninga, raunverulegum dæmum og verkefnum í lok hvers kafla er þetta ekki venjuleg bók – heldur vinnubók sem hjálpar þér að verða verkfæri Guðs.

Hér ert þú ekki bara að lesa um vakningu.

Hér ert þú að undirbúa þig fyrir hana.

Fyrir alla sem trúa því að Guð geti enn fyllt dalinn vatni á Íslandi á okkar dögum.

Hvar má nálgast eintök af bókinni og hvað kostar hún?

Frá 2.júní má nálgast eintök á Lindinni útvarpsstöð, Krókhálsi 4, á skrifstofutíma.

Fyrir þá sem sem geta ekki nálgast eintök þar er best að hafa samband og við finnum leið.

Bókin er ókeypis. Ef þú vilt hjálpa okkur að gefa öðrum bókina má styrkja Every Nation Ísland:
Kennitala 590209-1980
Rknr. 0175-05-070034

Hlekkir í bókinni

Predikun með Jon Tyson

Ashley Lande

Loka könnun (kaflinn Lokaorð)


Ef þú hefur spurningar eða athugasemdir og eins ef þú rekst á eitthvað sem betur má fara þá sendu skilaboð hér.