Viðauki 1: Að skoða sönnunargögnin

Takið öllu með ró og stillingu og treystið Drottni, Jesú Kristi. Ef einhver spyr ykkur hvers vegna þið gerið það, verið þá reiðubúin að svara með hógværð og sýnið virðingu þeim sem spyr.
1Pét 3:15

Sem lærisveinn ert þú í sambandi við Guð, í gegnum Jesú, sem umbreytir lífi þínu og þú hjálpar öðrum að gera slíkt hið sama. En hvernig getum við vitað að Guð sé til? Hér eru nokkur rök fyrir því.

Sköpun

Mennirnir hafa frá upphafi virt fyrir sér jörðina, himininn og allt sem Guð hefur gert. Þeir hafa því verið sér meðvitandi um tilveru hans og hans mikla, eilífa mátt. Þess vegna hafa þeir enga afsökun (þegar þeir standa frammi fyrir honum á degi dómsins).
Róm 1:20

Tilvist, sköpunarmáttur, margbreytileiki og skipan bæði alheimsins og lífvera benda til tilvistar máttugs og greinds skapara. Ef svo er ekki, „Af hverju er eitthvað til í stað ekkerts?“

Meðvitund

Hann mun refsa heiðingjunum þegar þeir syndga, jafnvel þótt þeir hafi aldrei þekkt hin skráðu lög Guðs, því að innra með sér þekkja þeir muninn á réttu og röngu. Lög Guðs eru skráð í vitund þeirra. Stundum dæmir samviskan þá og stundum afsakar hún þá.
Róm 2:14-15

Siðferði virkar aðeins ef til er hinn fullkomni löggjafi (sá sem ákveður hvað sé rétt og hvað sé rangt). Siðferðiskennd og innbyggð samviska mannkynsins bendir til þess að Guð sé til sem hinn fullkomni ytri löggjafi.

Ef svo er ekki, „Hver er grunnurinn að siðferði þínu? Á hverju byggir það að sumir hlutir eru fullkomlega rangir og aðrir fullkomlega réttir?“

Kristur

…en náðin og sannleikurinn kom með Jesú Kristi. Enginn hefur nokkurn tíma séð Guð en einkasonur hans, sem stendur næst föðurnum, hefur kennt okkur að þekkja hann.
Jóh 1:18

Í gegnum Jesú sjáum við sönnunargögn sem benda til Guðs. Jafnvel sagnfræðingar sem eru guðleysingar segja að það að fullyrða að Jesús var ekki til er vitsmunalega óforsvaranlegt. Það eru til sagnfræðilegar heimildir fyrir því að:

  • Jesús var til, og að hann kenndi og þjónaði til fólks
  • Jesús var tekinn af lífi fyrir að segjast vera Guð
  • Gröf Jesú var fundin tóm
  • Fylgjendur hans héldu áfram að lofa hann sem Guð og kenna öðrum það sem hann hafði kennt þeim. Margir af þeim voru teknir af lífi vegna þess að þeir neituðu að hafna trú sinni á að Jesús væri Guð.

Einnig fullyrða biblíufræðingar að líf, dauði og upprisa Jesú uppfylli allt frá 200-400 spádóma í Biblíunni sem skrifaðir voru áður en hann fæddist.

Breytt líf

Óteljandi umbreytt líf í gegnum söguna ásamt umbreytandi áhrifunum sem fylgjendur Jesú hafa haft á heiminn benda til tilvistar máttugs Guðs sem breytir fólki.

Mundu eftir mættinum í þínum eigin vitnisburði og í vitnisburðum annarra í kringum heiminum. Eins og blindi maðurinn sem Jesú læknaði sagði þegar hann var yfirheyrður: „…en það veit ég, að ég, sem var blindur, er nú sjáandi!“