6. Iðrun

Ný stefna

Pétur svaraði: „Sérhvert ykkar verður að snúa sér frá syndinni og láta skírast í nafni Jesú Krists til fyrirgefningar syndanna og þá fáið þið einnig þessa gjöf, heilagan anda.“
Post 2:38

Að keyra bíl í ranga átt niður einstefnugötu er fíflalegt og hættulegt. Sumir keyra í ranga átt vegna vankunnáttu; aðrir þegar þeir eru í uppreisnarhug. Það er til andleg samlíking. Hvort sem það er vegna vankunnáttu eða í uppreisn erum við öll á hættulegri einstefnugötu sem mun að lokum leiða til eilífðs aðskilnaðar frá Guði. Þangað til við snúum við (iðrumst) og byrjum að fylgja Kristi, er hvert skref sem við tökum skref í ranga átt – skref í burtu frá Guði.

Iðrun, hryggð og ávöxtur

Raunveruleg iðrun byrjar þegar syndir okkar virkilega hryggja okkur. Þessi hryggð, sem er Guði að skapi, kemur ekki með neinar afsakanir, tekur fulla ábyrgð og kennir ekki öðru fólki, samfélaginu eða kringumstæðum um. Hún viðurkennir að okkar synd er fyrst og fremst gegn Guði. Þessi hryggð skapar raunverulega iðrun og breytt líf.

Stundum notar Guð hryggð okkar til að leiða okkur frá syndinni og til eilífs lífs og þá verður hún okkur til blessunar. Sönn iðrun fylgir þó ekki hryggð heimsins og þess vegna veldur hryggð heimsins dauða.
2Kor 7:10

Þá játaði ég synd mína fyrir þér og duldi ekki sekt mína en sagði: „Ég vil játa afbrot mín fyrir Drottni.“ Og þú afmáðir syndasekt mína.
Sál 32:5

Hryggð sem er af heiminum býr hins vegar aðeins til afsakanir fyrir það sem gerðist. Hryggð sem er Guði að skapi er þegar við höfum brostið hjarta yfir því að hafa syndgað gegn heilögum Guði. Aftur á móti er hryggð af heiminum þegar við erum svekkt yfir því að hafa náðst eða yfir því að þurfa að taka afleiðingum synda okkar. Megin munurinn á hryggð sem er af heiminum og hryggð sem er Guði að skapi er ávöxtur hryggðarinnar. Hryggð sem er af heiminum framleiðir aldrei breytt líf sem ávöxt, heldur aðeins andlegan dauða.

Ég hvatti alla til að snúa sér frá syndinni og til Guðs og sanna afturhvarf sitt með því að ástunda góð verk.
Post 26:20

Áður en þið látið skírast verðið þið að sýna í verki að þið hafið snúið ykkur frá syndinni.
Mat 3:8

Iðrun og fyrirgefning

Dæmisagan af týnda syninum í Lúkasarguðspjalli 15:11-24 er falleg lýsing af sannri iðrun. Týndi sonurinn áttar sig á mistökum sínum, snýr baki við fíflskunni og snýr aftur til föðurs síns. Hann tekur 180° beygju og gengur burt frá fyrra lífi sínu af synd og uppreisn. Faðir hans fyrirgaf honum fyrir mistök hans og tók aftur á móti honum. Á sama hátt er faðir okkar á himnum trúfastur okkur og fyrirgefur okkur þegar við snúum til hans og iðrumst.

Breytið nú um hugarfar og gerið iðrun. Snúið ykkur til Guðs, svo að hann geti hreinsað burt syndir ykkar. Hann getur gefið ykkur endurnýjunartíma og sent ykkur Jesú á ný, konunginn, sem ykkur hafði verið heitinn.
Post 3:19-20

Hefur þú lent í að fá blett á stuttermabolinn þinn sem fer ekki úr í þvotti? Ímyndaðu þér blettahreinsi sem myndi ekki aðeins eyða blettinum heldur einnig gera bolinn eins og nýjann aftur. Það er það sem gerist þegar við iðrumst og tökum á móti Jesú sem frelsara lífs okkar. Hann hreinsar ekki aðeins blettina af sektarkennd og skömm frá synd af hjarta okkar. Hann gefur okkur nýtt hjarta.

En ef við játum syndir okkar fyrir Guði, getum við treyst því að hann fyrirgefi þær og hreinsi okkur af öllu ranglæti.
1Jóh 1:9

Mikilvægi þess að fyrirgefa öðrum

Líkt og þegar við fáum fyrirgefningu fyrir syndir okkar frá Guði, segir hann okkur að fyrirgefa öðrum sem hafa syndgað gegn okkur.

Þá kom Pétur til hans og spurði: „Herra; hve oft á ég að fyrirgefa þeim sem syndgar gegn mér? Sjö sinnum?“„Nei, sjötíu sinnum sjö, – endalaust!“ svaraði Jesús.
Mat 18:21-22

En ef við neitum að fyrirgefa öðrum kennir Biblían okkur að við verðum beisk við hvert annað og að það leiði til mikilla vandræða.

Gefið gætur hvert að öðru, svo að þið missið ekki af blessun Guðs. Gætið þess að verða ekki beisk hvert við annað, því að beiskjan er trúnni til mikils tjóns.
Heb 12:15

Engin eftirsjá

Iðrun snýst um að snúa frá synd og snúa til Guðs. Það merkir að við hættum að leggja traust okkar á okkar verk og trúarlegar athafnir, heldur byrjum að treysta aðeins Kristi. Við vorum á leið í ranga átt; núna erum við á leið í rétta átt. Við vorum að hlaupa frá Guði; núna erum við að ganga með honum. Iðrun er upphafspunktur nýs lífs. Iðrun færir okkur af hlaupabrettinu sem sjálfhverft líf er og setur okkur á brautina sem felur í sér frábæran tilgang Guðs fyrir líf okkar. Að snúa sér til Guðs merkir að líta ekki um öxl og hafa enga eftirsjá.

Stundum notar Guð hryggð okkar til að leiða okkur frá syndinni og til eilífs lífs og þá verður hún okkur til blessunar. Hryggð hinna er hins vegar ekki sú sem fylgir sannri iðrun og forðar því ekki frá eilífum dauða.
2Kor 7:10

Hagnýting

  • Er líf þitt á nýrri braut?
  • Eru einhver syndug svið í lífi þínu sem eru ennþá áskorun?
  • Eru svið í lífi þínu sem innihalda mikla freistingu eða áframhaldandi veikleika sem þú þarfnast bænar fyrir?
  • Eru einhverjar syndir sem þú hefur snúið þér frá en finnur ennþá fyrir fordæmingu* yfir?
Hvað er fordæming?

Fordæming er sekt, skömm og að upplifa sakfellingu. Heilagur Andi gefur sannfæringu sem leiðir til iðrunar, gleði og nýs lífs. Fordæmingin kemur frá óvinum og leiðir til skammar, örvæntingar og þess að þú vilt fela þig fyrir Guði. Biblían talar um fordæmingu á nokkrum stöðum, t.d. Róm 8:1, 1Jóh 1:9 (óbeint), Sál 103.12 (óbeint).