10. Að verða lærisveinn

Nýtt hlutverk

Takið öllu með ró og stillingu og treystið Drottni, Jesú Kristi. Ef einhver spyr ykkur hvers vegna þið gerið það, verið þá reiðubúin að svara með hógværð og sýnið virðingu þeim sem spyr.
1Pét 3:15

Jesús fór því aftur um borð í bátinn, en þá bað maðurinn, sem haft hafði illu andana hann að leyfa sér að koma með, en Jesús leyfði það ekki. „Farðu heim til þín og þinna,” sagði hann, „og segðu þeim hve mikið Guð hefur gert fyrir þig og hversu hann hefur miskunnað þér.”
Mrk 5:18-19

Ef þú værir læknirinn sem uppgötvaðir lækningu við krabbameini, myndirðu ekki vilja að allir vissu af þessari uppgötvun þinni? Nú hefur þú lækningu við nokkru sem er lífshættulegra en krabbamein. Þú hefur lausnina við synd.

Að gera aðra að lærisveinum byrjar með því að deila góðu fréttunum um lausn Guðs við synd, með fjölskyldu og vinum.  Til að vera reiðubúin að segja öðrum frá voninni um sáluhjálp, verðum við að læra að deila vitnisburði okkar og predika fagnaðarerindið.

Þegar við gerum þetta, gerum við aðra að lærisveinum.

Hvernig á að gefa vitnisburð

Í réttarsal verður vitni að segja sannleikann um það sem viðkomandi hefur séð, heyrt eða upplifað. Við erum kölluð til að bera Guði vitni.

Þegar við deilum vitnisburði okkar eigum við að segja sannleikann um hvað hann hefur gert fyrir okkur, í okkur og gegnum okkur.

Að vera vitni krefst þess einnig að við lifum lífi sem ber vitni um náð Drottins Jesú. Vitni er það sem við erum, ekki bara eitthvað sem við gerum. Við eigum að „vera“ vitni.

Eina leiðin til að við getum verið vitni er fyrir kraft Heilags Anda, sem eflir okkur til að flytja vitnisburð okkar og fagnaðarerindið með djörfung. 

Orð vitnisburðar þíns eru kröftug. Þau eru persónuleg, óhrekjanleg frásögn um það sem Jesús hefur gert fyrir þig og hvernig hann hefur breytt lífi þínu.

Það eru þrír þættir í því að deila vitnisburði þínum, sem er þitt tveggja-mínútna kraftaverk:

  • Lýstu lífi þínu stuttlega áður en þú mættir Kristi
  • Útskýrðu vandlega hvernig þú komst á þann stað að gefa líf þitt Kristi
  • Lýstu lífi þínu, síðan þú gerðir Jesú að Drottni, með gleði. Gefðu þér tíma til að útskýra hvernig líf þitt hefur breyst síðan þú gafst líf þitt Kristi.

Þeir sigruðu hann með blóði lambsins og vitnisburði sínum. Þeir elskuðu ekki eigið líf heldur gáfu það lambinu.
Opb 12:11

Hvernig á að predika fagnaðarerindið

Fagnaðarerindið er kraftur Guðs sem frelsar alla þá sem trúa. Það er ástæða þess að við tengjumst menningu og samfélagi, verðum vitni og deilum vitnisburði okkar.

Ég blygðast mín ekki fyrir fagnaðarerindið, því það er leið Guðs til eilífs lífs fyrir hvern þann sem trúir honum og treystir á hann. Fyrst var þessi boðskapur einungis fluttur Gyðingum en nú er öllum opið að koma til Guðs á þennan hátt.
Róm 1:16

Predikaðu fagnaðarerindið með því að nota tvö einföld vers fyrir vini þína og fjölskyldu.

Allir hafa syndgað – óhlýðnast Guði og skortir dýrð hans…
Róm 3:23

Allir hafa syndgað. Synd er hverskonar óhlýðni eða uppreisn gegn Guði og það er í rauninni ekki ein einasta manneskja á jörðinni sem hefur hlýtt boðorðum Guðs fullkomlega.

Laun syndarinnar eru dauði en óverðskulduð gjöf Guðs til okkar er eilíft líf í Kristi Jesú, Drottni okkar og frelsara.
Róm 6:23

Þar sem við höfum öll syndgað, verðskuldum við dauða og erum jafnvel útilokuð frá því að fá að vera í nærveru Guðs. Góðu fréttirnar eru þær að sáluhjálpin er gjöf frá Guði! 

Sáluhjálp er eingöngu fengin í Kristi vegna þess að hann dó á krossinum fyrir okkur, í okkar stað. Þegar við setjum traust okkar á fullkomnað verk hans á krossinum, getum við tekið á móti þessari gjöf í trú. 

Þegar þú hefur útskýrt fagnaðarerindið fyrir fjölskyldu þinni og vinum, ekki hika við að leiða þau í bæn.

Að gera aðra að lærisveinum

Við gerum fólk að lærisveinum þegar við kynnum það fyrir Jesú og kennum því hvernig á að hlýða boðum Guðs. Páll sagði Tímóteusi að taka allt sem hann hafði lært og kenna öðrum það sem myndu þá geta kennt fleirum. Það er að gera aðra að lærisveinum.

Farið því og gerið allar þjóðir að mínum lærisveinum. Skírið þá í nafni föður, sonar og heilags anda og kennið þeim að halda allt það sem ég hef boðið ykkur. Takið eftir! Ég er með ykkur alla daga allt til enda veraldarinnar.
Mat 28:19-20

Þitt hlutverk er að fræða aðra um það sem þú heyrðir mig tala í viðurvist margra votta. Þessi sannindi skaltu kenna mönnum sem hægt er að treysta svo að þeir geti síðan kennt þau öðrum.
2Tím 2:2

Hagnýting

  • Ber líf þitt vitni um Guð?
  • Deildu þínu tveggja mínútna kraftaverki með þeim sem er að fara yfir þetta efni með þér.
  • Biddu fyrir fjölskyldu þinni og vinum sem hafa enn ekki heyrt fagnaðarerindið.
  • Farðu og gerðu aðra að lærisveinum!