Maður á mann – Every Nation Iceland

Viðauki 3: Fimm fyrstu skrefin
Jesús kallaði til þeirra og sagði: „Komið og fylgið mér. Ég skal kenna ykkur að veiða menn!”
Mrk 1:17

Þessi fimm skref hjálpa þér að byrja göngu þína með Kristi.

Skref 1

Treystu því að sáluhjálp þín komi frá Kristi einum, en ekki frá þér eða verkum þínum.

Það var miskunn Guðs að þakka að þið frelsuðust með því að trúa á Krist. Trú ykkar er ekki ykkur að þakka, hún er líka gjöf frá Guði. Hjálpræði Guðs er ekki laun fyrir góðverk ykkar og þess vegna getur heldur enginn þakkað sjálfum sér það.
Ef 2:8-9

Skref 2

Snúðu þér frá öllu sem biblían kallar synd.

En Guðs styrki grundvöllur stendur, merktur þessum innsiglisorðum:
„Drottinn þekkir sína,“ og: „Hver sá sem nefnir nafn Drottins haldi sér frá ranglæti.“
2Tím 2:19

Skref 3

Taktu þátt í heimahópi og vikulegum samkomum.

Gætum hvert að öðru og hvetjum hvert annað til að sýna hjálpsemi og að gera öðrum gott. Vanrækjum ekki söfnuð okkar eins og sumir gera, heldur hvetjum og áminnum hvert annað, sérstaklega nú er endurkoma Jesú nálgast.Gefum gætur hvert að öðru og hvetjum hvert annað til kærleika og góðra verka.
Heb 10:24-25

Skref 4

Lestu Biblíuna og hlýddu henni alla daga.

Þessi lögbók skal ekki víkja úr munni þínum. Þú skalt hugleiða efni hennar dag og nótt svo að þú getir gætt þess að fylgja nákvæmlega því sem þar er skráð, til þess að ná settu marki og þér farnist vel.
Jós 1:8

Skref 5

Segðu öðrum frá sambandi þínu við Krist.

…en Jesús leyfði það ekki. „Farðu heim til þín og þinna,” sagði hann, „og segðu þeim hve mikið Guð hefur gert fyrir þig og hversu hann hefur miskunnað þér.” Maðurinn fór því til þorpanna tíu þar í héraðinu og sagði öllum frá þeim stórkostlegu hlutum sem Jesús hafði gert fyrir hann og undruðust það allir.
Mrk 5:19-20

Viðauki 2: Að upplifa Guð
Þú hefur skapað okkur fyrir þig, ó Guð, og hjörtu okkar hvíldarlaus þar til þau finna hvíld í þér.
Ágústínus frá Hippó

Lesið Biblíuna og biðjið á hverjum degi og þið munið vaxa, vaxa, vaxa!
Úr lagi fyrir börn

Við erum sköpuð fyrir samband við Guð og það er það sem sálir okkar þrá. Lærisveinar Jesú eru frelsaðir til þess að upplifa ríkt, náið og umbreytandi samband við Guð föðurinn í gegnum Jesú Krist og með mætti Heilags Anda. Að neðan er að finna tvær venjur sem munu hjálpa þér að upplifa Guð og vaxa með því að lesa Biblíuna og biðja.

Hjálpleg aðferð til þess að lesa Biblíuna á hverjum degi

Öll Biblían er orð Guðs, því að hún er innblásin af Heilögum anda. Hún kennir okkur sannleikann og bendir okkur á það sem rangt er í lífi okkar. Hún leiðréttir okkur og hjálpar okkur að gera það sem rétt er. Hún er verkfæri Guðs til að móta líf okkar og gera okkur hæf til að vinna það sem gott er.
2Tím 3:16-17

Til þess að við upplifum máttinn af orði Guðs er mikilvægt að við ekki aðeins lesum Biblíuna, heldur hugleiðum og notum einnig það sem við lesum. Við notum þessi 4 þrep til þess:

Lesa – Skoða – Nota – Biðja

Lestu orðið

Veldu bók í Biblíunni til þess að byrja að lesa, helst í Nýja testamentinu. Ef þú ert ekki kunnug/ur Biblíunni er gott að byrja á Markúsarguðspjalli.

Ekki lesa textann tilviljunarkennt heldur skipulega til þess að þú skilur samhengi versana og færð gott og jafnt fæði. Lestu hluta af textanum á hverjum degi og haltu áfram næsta dag þar sem frá var horfið.

Það er gott að lesa stóra texta úr Biblíunni en að gefa sér tíma til þess að hugleiða nokkur vers í senn og nota þau er mun betra langtímaaðferð.

„Hæg og skipuleg lesning gefur nákvæma leiðsögn.“

Skoðaðu orðið

Til hvaða manneskju er það skrifað? Af hverju? Um hvað snýst það?

Hvað held ég að það merki? Hvernig myndi ég útskýra það í mínum eigin orðum?

Hvað læri ég um Guð: Loforð hans og eiginleika?

Hvað læri ég um hvernig ég eigi að lifa lífinu: hvaða boð eða dæmi eru til að fylgja

Hvaða sannleiki sker sig úr fyrir mig persónulega og hvernig styrkist trú mín með þessum texta?

Notaðu orðið

Hvernig tengist þessi texti lífi mínu núna?

Hvað kennir þessi sannleiki mér, hvaða synd finn ég mig kallaða/n til þess að iðrast fyrir og hvaða skref þarf ég að taka til þess að hlýða sannleikanum í þessum texta?

Hvað mun ég byrja að gera og hverju mun ég hætta til þess að nota þennan texta í lífi mínu?

Biddu orðið

Talaðu við Guð um það sem þú hefur lesið. Biddu hann um vísdóm til þess að hjálpa þér að skilja og fyrir styrk og hugrekki til þess að lifa þessum sannleika.

Notaðu þessa sannleika sem þú hefur lesið til þess að biðja fyrir sjálfri/um þér, fjölskyldu þinni, kirkjunni, fólki sem þekki Jesú ekki ennþá og heiminum.

Til þess að fá sem mest út úr tíma þínum er gott að taka frá svipaðan tíma á hverjum degi. Þar getur þú haft glósubók og penna til þess að skrifa niður hvað sem er hjálplegt að muna og hugleiða: lykilvers, hugleiðingar, hugsanir fyrir daginn, hvatningar Heilags Anda eða markmið.

Bæn

Einlæg og kröftug bæn réttláts manns megnar mikið.
Jak 5:16

Stækkaðu og auðgaðu bænalíf þitt með þessum skrefum:

Lofgjörð

Verðu tíma í að viðurkenna og upphefja Guð. Lofaðu hann fyrir það hver hann er og upplyftu honum ofar öllu öðru sem þú sérð, hugsar eða finnur á þessari stundu.

Játning

Játaðu fyrir Guði þau svið í lífi þínu þar sem þú hefur syndgað og mistekist að fylgja orði hans. Játaðu trú þína á Krist og þína nýju persónu í honum. Mundu þeir sem tilheyra Jesú Kristi verða ekki fordæmdir (Róm 8:1). Taktu á móti fyrirgefningu og þeirri gjöf sem hrein samviska og endurbyggt náið samband við Guð er (1Jóh 1:9, Heb 10:22).

Þakklæti

Þakkaðu honum fyrir sjálarhjálp þína, fyrir allt sem hann hefur gert bæði stórt og smátt og fyrir bænirnar sem hann hefur svarað upp á síðkastið.

Þarfir

Komdu með þarfir og beiðnir þínar til Guðs. Biddu fyrir þörfum annarra; fjölskyldumeðlima, vina, vinnufélaga og nágranna. Biddu fyrir þeim sem eru týndir og þurfa að taka á móti Jesú.

Viðauki 1: Að skoða sönnunargögnin
Takið öllu með ró og stillingu og treystið Drottni, Jesú Kristi. Ef einhver spyr ykkur hvers vegna þið gerið það, verið þá reiðubúin að svara með hógværð og sýnið virðingu þeim sem spyr.
1Pét 3:15

Sem lærisveinn ert þú í sambandi við Guð, í gegnum Jesú, sem umbreytir lífi þínu og þú hjálpar öðrum að gera slíkt hið sama. En hvernig getum við vitað að Guð sé til? Hér eru nokkur rök fyrir því.

Sköpun

Mennirnir hafa frá upphafi virt fyrir sér jörðina, himininn og allt sem Guð hefur gert. Þeir hafa því verið sér meðvitandi um tilveru hans og hans mikla, eilífa mátt. Þess vegna hafa þeir enga afsökun (þegar þeir standa frammi fyrir honum á degi dómsins).
Róm 1:20

Tilvist, sköpunarmáttur, margbreytileiki og skipan bæði alheimsins og lífvera benda til tilvistar máttugs og greinds skapara. Ef svo er ekki, „Af hverju er eitthvað til í stað ekkerts?“

Meðvitund

Hann mun refsa heiðingjunum þegar þeir syndga, jafnvel þótt þeir hafi aldrei þekkt hin skráðu lög Guðs, því að innra með sér þekkja þeir muninn á réttu og röngu. Lög Guðs eru skráð í vitund þeirra. Stundum dæmir samviskan þá og stundum afsakar hún þá.
Róm 2:14-15

Siðferði virkar aðeins ef til er hinn fullkomni löggjafi (sá sem ákveður hvað sé rétt og hvað sé rangt). Siðferðiskennd og innbyggð samviska mannkynsins bendir til þess að Guð sé til sem hinn fullkomni ytri löggjafi.

Ef svo er ekki, „Hver er grunnurinn að siðferði þínu? Á hverju byggir það að sumir hlutir eru fullkomlega rangir og aðrir fullkomlega réttir?“

Kristur

…en náðin og sannleikurinn kom með Jesú Kristi. Enginn hefur nokkurn tíma séð Guð en einkasonur hans, sem stendur næst föðurnum, hefur kennt okkur að þekkja hann.
Jóh 1:18

Í gegnum Jesú sjáum við sönnunargögn sem benda til Guðs. Jafnvel sagnfræðingar sem eru guðleysingar segja að það að fullyrða að Jesús var ekki til er vitsmunalega óforsvaranlegt. Það eru til sagnfræðilegar heimildir fyrir því að:

Jesús var til, og að hann kenndi og þjónaði til fólks

Jesús var tekinn af lífi fyrir að segjast vera Guð

Gröf Jesú var fundin tóm

Fylgjendur hans héldu áfram að lofa hann sem Guð og kenna öðrum það sem hann hafði kennt þeim. Margir af þeim voru teknir af lífi vegna þess að þeir neituðu að hafna trú sinni á að Jesús væri Guð.

Einnig fullyrða biblíufræðingar að líf, dauði og upprisa Jesú uppfylli allt frá 200-400 spádóma í Biblíunni sem skrifaðir voru áður en hann fæddist.

Breytt líf

Óteljandi umbreytt líf í gegnum söguna ásamt umbreytandi áhrifunum sem fylgjendur Jesú hafa haft á heiminn benda til tilvistar máttugs Guðs sem breytir fólki.

Mundu eftir mættinum í þínum eigin vitnisburði og í vitnisburðum annarra í kringum heiminum. Eins og blindi maðurinn sem Jesú læknaði sagði þegar hann var yfirheyrður: „…en það veit ég, að ég, sem var blindur, er nú sjáandi!“

10. Að verða lærisveinn
Nýtt hlutverk

Takið öllu með ró og stillingu og treystið Drottni, Jesú Kristi. Ef einhver spyr ykkur hvers vegna þið gerið það, verið þá reiðubúin að svara með hógværð og sýnið virðingu þeim sem spyr.
1Pét 3:15

Jesús fór því aftur um borð í bátinn, en þá bað maðurinn, sem haft hafði illu andana hann að leyfa sér að koma með, en Jesús leyfði það ekki. „Farðu heim til þín og þinna,” sagði hann, „og segðu þeim hve mikið Guð hefur gert fyrir þig og hversu hann hefur miskunnað þér.”
Mrk 5:18-19

Ef þú værir læknirinn sem uppgötvaðir lækningu við krabbameini, myndirðu ekki vilja að allir vissu af þessari uppgötvun þinni? Nú hefur þú lækningu við nokkru sem er lífshættulegra en krabbamein. Þú hefur lausnina við synd.

Að gera aðra að lærisveinum byrjar með því að deila góðu fréttunum um lausn Guðs við synd, með fjölskyldu og vinum.  Til að vera reiðubúin að segja öðrum frá voninni um sáluhjálp, verðum við að læra að deila vitnisburði okkar og predika fagnaðarerindið.

Þegar við gerum þetta, gerum við aðra að lærisveinum.

Hvernig á að gefa vitnisburð

Í réttarsal verður vitni að segja sannleikann um það sem viðkomandi hefur séð, heyrt eða upplifað. Við erum kölluð til að bera Guði vitni.

Þegar við deilum vitnisburði okkar eigum við að segja sannleikann um hvað hann hefur gert fyrir okkur, í okkur og gegnum okkur.

Að vera vitni krefst þess einnig að við lifum lífi sem ber vitni um náð Drottins Jesú. Vitni er það sem við erum, ekki bara eitthvað sem við gerum. Við eigum að „vera“ vitni.

Eina leiðin til að við getum verið vitni er fyrir kraft Heilags Anda, sem eflir okkur til að flytja vitnisburð okkar og fagnaðarerindið með djörfung.

Orð vitnisburðar þíns eru kröftug. Þau eru persónuleg, óhrekjanleg frásögn um það sem Jesús hefur gert fyrir þig og hvernig hann hefur breytt lífi þínu.

Það eru þrír þættir í því að deila vitnisburði þínum, sem er þitt tveggja-mínútna kraftaverk:

Lýstu lífi þínu stuttlega áður en þú mættir Kristi

Útskýrðu vandlega hvernig þú komst á þann stað að gefa líf þitt Kristi

Lýstu lífi þínu, síðan þú gerðir Jesú að Drottni, með gleði. Gefðu þér tíma til að útskýra hvernig líf þitt hefur breyst síðan þú gafst líf þitt Kristi.

Þeir sigruðu hann með blóði lambsins og vitnisburði sínum. Þeir elskuðu ekki eigið líf heldur gáfu það lambinu.
Opb 12:11

Hvernig á að predika fagnaðarerindið

Fagnaðarerindið er kraftur Guðs sem frelsar alla þá sem trúa. Það er ástæða þess að við tengjumst menningu og samfélagi, verðum vitni og deilum vitnisburði okkar.

Ég blygðast mín ekki fyrir fagnaðarerindið, því það er leið Guðs til eilífs lífs fyrir hvern þann sem trúir honum og treystir á hann. Fyrst var þessi boðskapur einungis fluttur Gyðingum en nú er öllum opið að koma til Guðs á þennan hátt.
Róm 1:16

Predikaðu fagnaðarerindið með því að nota tvö einföld vers fyrir vini þína og fjölskyldu.

Allir hafa syndgað – óhlýðnast Guði og skortir dýrð hans…
Róm 3:23

Allir hafa syndgað. Synd er hverskonar óhlýðni eða uppreisn gegn Guði og það er í rauninni ekki ein einasta manneskja á jörðinni sem hefur hlýtt boðorðum Guðs fullkomlega.

Laun syndarinnar eru dauði en óverðskulduð gjöf Guðs til okkar er eilíft líf í Kristi Jesú, Drottni okkar og frelsara.
Róm 6:23

Þar sem við höfum öll syndgað, verðskuldum við dauða og erum jafnvel útilokuð frá því að fá að vera í nærveru Guðs. Góðu fréttirnar eru þær að sáluhjálpin er gjöf frá Guði!

Sáluhjálp er eingöngu fengin í Kristi vegna þess að hann dó á krossinum fyrir okkur, í okkar stað. Þegar við setjum traust okkar á fullkomnað verk hans á krossinum, getum við tekið á móti þessari gjöf í trú.

Þegar þú hefur útskýrt fagnaðarerindið fyrir fjölskyldu þinni og vinum, ekki hika við að leiða þau í bæn.

Að gera aðra að lærisveinum

Við gerum fólk að lærisveinum þegar við kynnum það fyrir Jesú og kennum því hvernig á að hlýða boðum Guðs. Páll sagði Tímóteusi að taka allt sem hann hafði lært og kenna öðrum það sem myndu þá geta kennt fleirum. Það er að gera aðra að lærisveinum.

Farið því og gerið allar þjóðir að mínum lærisveinum. Skírið þá í nafni föður, sonar og heilags anda og kennið þeim að halda allt það sem ég hef boðið ykkur. Takið eftir! Ég er með ykkur alla daga allt til enda veraldarinnar.
Mat 28:19-20

Þitt hlutverk er að fræða aðra um það sem þú heyrðir mig tala í viðurvist margra votta. Þessi sannindi skaltu kenna mönnum sem hægt er að treysta svo að þeir geti síðan kennt þau öðrum.
2Tím 2:2

Hagnýting

Ber líf þitt vitni um Guð?

Deildu þínu tveggja mínútna kraftaverki með þeim sem er að fara yfir þetta efni með þér.

Biddu fyrir fjölskyldu þinni og vinum sem hafa enn ekki heyrt fagnaðarerindið.

Farðu og gerðu aðra að lærisveinum!

9. Kirkjan
Ný sambönd

Símon Pétur svaraði: „Þú ert Kristur, sonur hins lifanda Guðs.” „Sæll ert þú, Símon Pétur,” svaraði Jesús, „því faðir minn á himnum hefur sjálfur sannfært þig um þetta – þú hefur þetta ekki frá neinum manni. Þú ert Pétur – kletturinn – á þessum kletti mun ég byggja söfnuð minn og vald vítis mun ekki megna að yfirbuga hann.
Mat 16:16-18

Fyrir opinberun Heilags Anda, játaði Pétur hver Jesús var í raun og veru; sonur hins lifanda Guðs. Jesús sagði að þessi sannleikur yrði hornsteinninn sem kirkja hans yrði byggð á.

Hann lýsti því einnig hvers konar kirkju hann myndi byggja, sigursæla kirkju sem myndi yfirbuga ríki myrkursins. Jesús og Páll notuðu orðið kirkja yfir fólk Guðs.

Kirkja vísaði því aldrei til byggingar. Hér á eftir má sjá fjóra kosti þess að vera hluti af kirkju í þínu nærumhverfi.

Vinátta

Sannir vinir. Allir þurfa á þeim að halda. Fáir finna þá. Besti staðurinn til að leita að sönnum vinum er innan kirkjunnar, meðal fólks Guðs.

Sannir vinir eru þeir sem bera hag okkar fyrir brjósti. Þeir standa með okkur í gegnum þykkt og þunnt. Sannir vinir leiða okkur aldrei í burtu frá Guði. Þess í stað brýna þeir okkur til guðsótta.

Vinur lætur aldrei af vináttu sinni,
í andstreymi reynist hann sem bróðir.
Orð 17:17

Til eru vinir sem bregðast
og til er sá vinur sem reynist tryggari en bróðir.
Orð 18:24

Samfélag

Sé brennandi kolamoli fjarlægður úr eldi, kólnar hann. Ef hann er aftur settur í miðja brennandi kolahrúguna, mun hann brenna á ný. Hið sama á við um kristna einstaklinga.

Hverfi kristinn einstaklingur frá samfélagi við aðra brennheita kristna, mun hann kólna andlega. Ef kristinn einstaklingur heldur sig við kristinn félagsskap, heldur hann sér brennandi fyrir Guði.

Eftir það leysti Guð hann úr greipum dauðans og lét hann vakna aftur til lífsins, því dauðinn gat ekki haldið honum … Allir sem trúðu héldu hópinn og höfðu allt sameiginlegt. Þeir seldu eigur sínar og skiptu síðan milli allra eftir þörfum hvers og eins. Þeir komu daglega saman í musterinu, til að lofa Guð og tilbiðja. Einnig hittist fólkið í smáhópum í heimahúsum þar sem brauðið var brotið. Þau neyttu fæðunnar með gleði og þakklæti…
Post 2:24, 44-46

Forðist félagsskap við þá sem ekki elska Drottin, því hvað eiga börn Guðs sameiginlegt með börnum syndarinnar? Hvernig er hægt að sameina ljós og myrkur?
2Kor 6:14

Tilbeiðsla

Guð leitar einlægra tilbiðjenda. Tilbeiðsla er einfaldlega það að tjá ást okkar, trúfesti og skuldbindingu við Guð.

„sá tími kemur þegar ekki skiptir máli hvort við tilbiðjum föðurinn hér eða í Jerúsalem. Spurningin er ekki hvar við tilbiðjum, heldur hvernig. Hverjum manni er nauðsynlegt að fá hjálp heilags anda til að geta tilbeðið Guð á réttan hátt og eftir hans vilja.”
Jóh 4:23-24

Að vera lærisveinn

Síðasta boðorðið sem Jesús gaf fylgjendum sínum áður en hann steig upp til himna var að fara og gera aðra að lærisveinum, og að kenna þeim hvernig eigi að hlýða orði Guðs.

Þess vegna eigum við fyrst að vera lærisveinar eða fylgjendur Jesú, síðan getum við kennt öðrum að fylgja honum.

Farið því og gerið allar þjóðir að mínum lærisveinum. Skírið þá í nafni föður, sonar og heilags anda og kennið þeim að halda allt það sem ég hef boðið ykkur. Takið eftir! Ég er með ykkur alla daga allt til enda veraldarinnar.
Mat 28:19-20

Þitt hlutverk er að fræða aðra um það sem þú heyrðir mig tala í viðurvist margra votta. Þessi sannindi skaltu kenna mönnum sem hægt er að treysta svo að þeir geti síðan kennt þau öðrum.
2Tím 2:2

Hagnýting

Færðu fræðslu, annaðhvort maður á mann eða í litlum hópi?

Ert þú að gera aðra að lærisveinum? Hverjum kennir þú að hlýða orði Guðs?

Ertu virkur meðlimur í kirkju í þínu nærumhverfi?

Nefndu þrjá kristna einstaklinga sem þú getur hringt í ef þú ert í andlegri neyð.

8. Trúfesti
Nýjar venjur

Þau héldu fast við kenningu postulanna og ræktu samfélagið, brotningu brauðsins og bænirnar.
Post 2:42

Það sem gerði frumkirkjuna lifandi og heilbrigða var hollusta hennar við Guð. Með trúfesti óx hún í sambandi sínu við hann og þróaði venjur sem endurspegluðu þessa trúfesti. Tvær nauðsynlegustu venjurnar eru lestur Biblíunnar og bæn.

Orð

Biblían er ekki tilviljunarkennt safn sagna, ljóða og bréfa, heldur innblásið, ritað orð Guðs. Við verðum að fylgja dæmi Jobs, sem mat Guðs orð meira en fæðu.

Ég hef ekki vikið frá skipun vara hans.

Ég hef varðveitt orð munns hans umfram daglega fæðu.
Job 23:12*

<details class="wp-block-details has-base-background-color has-background is-layout-flow wp-block-details-is-layout-flow"><summary>Athugasemd á þýðingu</summary>

Eigin þýðing höfundar á þessu versi þar sem bæði 1981 og 2007 útgáfur Íslensku Biblíunnar skortir þennan samanburð á orði Guðs við daglega fæðu okkar sem þó kemur fram í flestum vinsælum enskum þýðingum.

</details>

Við lifum samkvæmt veraldlegum viðmiðum áður en við snúum okkur til Krists. Nú viðurkennum við Biblíuna sem endanlega heimild þess hverju við trúum og hvernig við lifum.

Orð Guðs er okkar æðsta og endanlega viðmið fyrir öll svið lífsins.

Mælikvarði framfara okkar er ekki hve mikið við vitum um Biblíuna heldur hve vel við hlýðum því sem í henni stendur. Þeir sem látlaust læra en mistekst að hlýða blekkja sjálfa sig.

Og munið: Ekki nægir aðeins að hlusta á boðskapinn, honum verður einnig að hlýða, athugið það!
Jak 1:22

Biblían er lykill okkar að andlegum vexti. Með henni lærum við einnig hvernig við stöndumst freistingu, hvernig við verðum farsæl, og hvernig við getum þekkt vilja Guðs fyrir líf okkar.

Ef þið hafið fengið að kynnast góðvild og kærleika Drottins, biðjið þá um meira af slíku – rétt eins og ungbarnið sem sækist eftir meiri mjólk – svo að þið vaxið og styrkist í Drottni.
1Pét 2:2-3

Með hverju getur ungur maður haldið vegi sínum hreinum?
Með því að gefa gaum að orði þínu … Ég geymi orð þín í hjarta mínu
svo að ég syndgi ekki gegn þér.
Sál 119:9, 11

Þessi lögbók skal ekki víkja úr munni þínum. Þú skalt hugleiða efni hennar dag og nótt svo að þú getir gætt þess að fylgja nákvæmlega því sem þar er skráð, til þess að ná settu marki og þér farnist vel.
Jós 1:8

Takið ekki framkomu og lífsvenjur heimsins ykkur til fyrirmyndar. Lifið sem nýir menn! Látið orð Guðs og anda hans móta hugarfar ykkar og alla framkomu ykkar, orð og verk. Ef þið gerið þetta, þá munuð þið fá að reyna að þekkja vilja Guðs sem er hið góða fagra og fullkomna.
Róm 12:2

Bæn

Kristni er meira en trúarbrögð. Hún er fyrst og fremst samband við Guð. Grundvöllur allra heilbrigðra sambanda eru samskipti.

Því betri sem samskiptin eru, því betra verður sambandið. Guð talar til okkar á marga vegu en aðallega gegnum orð sitt, Biblíuna.

Við tölum við hann gegnum bæn. Við lærum að hlusta eftir rödd Guðs þegar við lesum orð hans. Hann hlustar á okkur þegar við biðjum. Við svörum orði hans með verkum. Hann svarar bænum okkar með verkum.

Jesús er besta fyrirmyndin þegar kemur að bæn. Með því að virða fyrir okkur hans persónulega bænalíf getum við lært að eiga náið samband við föðurinn.

Eitt sinn er Jesús hafði verið í einrúmi á bæn kom einn lærisveinanna til hans og sagði: „Drottinn, kenndu okkur að biðja eins og Jóhannes kenndi sínum lærisveinum.”
Lúk 11:1

Jesús sagði okkur að biðja ekki eins og hræsnararnir og þeir sem ekki þekkja Guð.

Verið ekki eins og hræsnararnir þegar þið biðjið. Þeir biðja á áberandi hátt á götuhornum og í samkomuhúsunum, þar sem allir sjá þá. Ég segi ykkur satt. Allt og sumt sem þeir fá fyrir þetta er athygli annarra! … Þyljið ekki bænir ykkar í belg og biðu eins og heiðingjarnir. Þeir halda að bænin verði heyrð ef hún er nógu löng og fagurlega orðuð. Minnist þess að faðir ykkar veit nákvæmlega hvers þið þarfnist, jafnvel áður en þið biðjið.
Mat 6:5, 7-8

Jesús sagði okkur að biðja til föðurins, ekki til móðurinnar, dýrlinga eða engla. Við eigum að biðja í gegnum Jesú, því hann er eina leiðin til föðurins.

Vertu í einrúmi þegar þú biður. Lokaðu dyrunum og bið til föður þíns þannig að að enginn viti. Faðir þinn, sem þekkir leyndar hugsanir þínar, mun bænheyra þig.
Mat 6:6

En sannleikurinn er þessi: Það er aðeins til einn Guð og sá sem brúar bilið milli hans og mannanna er maðurinn Jesús Kristur og til þess gaf hann líf sitt í dauðann fyrir mannkynið.
1Tím 2:5

Jesús svaraði: „Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið, enginn kemst til föðurins nema hann trúi á mig.
Jóh 14:6

Jesús kenndi lærisveinum sínum að biðja um Guðs vilja, forsjá hans, fyrirgefningu, sigur yfir freistingu og vernd fyrir ráðabruggi djöfulsins.

Biðjið þannig: „Kæri Faðir, þú sem ert á himnum, helgist þitt nafn. Komi ríki þitt. Verði þinn vilji á jörðu eins og á himnum. Gefðu okkur fæðu í dag eins og aðra daga. Fyrirgefðu okkur syndirnar, eins og við fyrirgefum þeim sem syndga gegn okkur. Leiddu okkur ekki í þyngri prófraunir en þær sem við fáum staðist og frelsaðu okkur frá illu. Amen.
Mat 6:9-13

Er við lesum og hlýðum orðinu, og á meðan við biðjum og treystum Guði fyrir lífi okkar, skulum við ekki gleyma því að Guð svarar raunverulega bænum. Því nákvæmari sem bænin er, því nákvæmara verður svarið. Leyndarmálið er að biðja samkvæmt vilja hans. Við lærum að þekkja vilja hans með því að þekkja orð hans. Þannig að, ef við biðjum samkvæmt orði hans, þá vitum við að hann svarar.

Við vitum einnig með vissu að hann hlustar á okkur hvenær sem við biðjum hann eftir hans vilja. Og fyrst við erum viss um að hann hlustar þegar við tölum við hann og biðjum, megum við einnig treysta því að hann svari okkur.
1Jóh 5:14-15

Hagnýting

Hefurðu tekið frá stund og stað fyrir daglegan lestur og bæn?

Ertu hluti af heimahóp?

Hefurðu fyrirgefið þeim sem hafa syndgað gegn þér?

Byrjaðu að biðja fyrir daglegum þörfum þínum.

7. Skírn
Nýtt líf

Pétur svaraði: „Sérhvert ykkar verður að snúa sér frá syndinni og láta skírast* í nafni Jesú Krists til fyrirgefningar syndanna og þá fáið þið einnig þessa gjöf, heilagan anda … Þeir sem trúðu orðum Péturs tóku skírn, alls um 3000 manns.
Post 2:38, 41

<details class="wp-block-details has-base-background-color has-background is-layout-flow wp-block-details-is-layout-flow"><summary>Hvað merkir skírn?</summary>

Algengasta skírnin á Íslandi hefur lengi verið skírn á ungbörnum á vegum þjóðkirkjunnar. Þar er vatni yfirleitt dreift á enni barnsins. Í þessum texta er orðið skírn hinsvegar í skilningi þess sem á íslensku er stundum kallað niðurdýfingarskírn fullorðinna. Þar hefur einstaklingur sjálfur tekið ákvörðun um að taka skírn og skírnin er framkvæmd með því að dýfa viðkomandi í vatn svo yfir fljóti. Þess má geta að til eru dæmi um niðurdýfingu ungbarna þar sem barninu er dýft í vatn svo yfir fljóti. Niðurdýfing er því ekki endilega einskorðuð við svokallaða fullorðinsskírn.

</details>

Þegar mannfjöldinn spurði Pétur hvernig ætti að bregðast við ræðunni hans, þá gaf hann svarið í þremur punktum: Iðrist, skírist og fyllist Heilögum Anda.

Þúsundir brugðust við og bættust í hóp trúaðra. Biblíulega fyrirmyndin er sú að hver sem skírist bætist einnig við þennan hóp trúaðra.

Gert er ráð fyrir að hver einstaklingur sem skírist verði virkur meðlimur í kristnum félagsskap.

Skírn í vatni

Með skírn staðfestum við opinberlega það sem Kristur gerði fyrir okkur á krossinum. Hún er ekki forsenda sáluhjálpar heldur hlýðni- og trúarskref í kjölfar þess að trúa fagnaðarerindinu og snúa sér til Guðs.

Biblían gefur fjölda samlíkinga til að hjálpa okkur að skilja skírnina. Ein þeirra er greftrun og upprisa.

Páll ber kristna skírn saman við greftrun. Til að vera grafinn, þarf einstaklingurinn að deyja. Á sama hátt er forsenda skírnar sú að deyja synd sinni.

Eftir greftrun í skírn rísum við upp til nýs lífs.

Hvað er um þetta að segja? Eigum við að halda áfram að syndga svo að Guð geti sýnt okkur kærleika sinn og fyrirgefningu enn betur? Nei, alls ekki! Hvaða vit er í því að syndga ef hægt er að komast hjá því? Valdið sem syndin hafði yfir okkur, var brotið á bak aftur þegar við urðum kristin og vorum skírð til að verða samgróin Kristi. Dauði Krists braut á bak aftur það afl sem syndin hafði í lífi okkar. Okkar gamla eðli, sem elskaði syndina, var grafið með honum í skírninni þegar hann dó. Og þegar Guð faðir reisti hann aftur til lífsins með dýrlegum krafti, þá eignuðumst við hlutdeild í lífi hans.
Róm 6:1-4

Með þessu sjáum við að í skírninni er hið gamla líf sett til hliðar og hið nýja líf birtist í hlýðni við Krist.

Skírn Heilags Anda

Það er ómögulegt að lifa hinu kristna lífi án krafts og nærveru Heilags Anda. Jesús lofaði að Heilagur Andi kæmi til að leiða okkur í allan sannleikann.

Ég segi ykkur satt það er ykkur til góðs að ég fari, því að fari ég ekki þá mun hjálparinn ekki koma en ef ég fer þá kemur hann því að ég mun senda hann til ykkar … En þegar heilagur andi, sannleiksandinn, kemur, mun hann leiða ykkur í allan sannleikann. Hann mun ekki tala af sjálfum sér, heldur skýra ykkur frá því sem hann hefur heyrt. Hann mun fræða ykkur um framtíðina.
Jóh 16:7, 13

Heilagur Andi eflir okkur til að vera áhrifarík vitni. Vitni er sá sem segir ekki aðeins sannleikann heldur lifir honum líka. Sem vitni hans, hjálpar Heilagur Andi okkur að gera það sem við getum ekki gert á eigin spýtur – að játa og lifa sannleikanum um Guð með djörfung.

En þegar heilagur andi kemur yfir ykkur, þá munuð þið fá djörfung og kraft til að vitna um dauða minn og upprisu fyrir íbúum Jerúsalem, Júdeu, Samaríu – já, öllum heiminum.
Post 1:8

Að taka á móti skírn Heilags Anda

Skírn Heilags Anda er gjöf sem lofað er hverjum þeim sem trúir, ekki aðeins þeim sem voru viðstaddir Hvítasunnudag. Í ræðu Péturs sagði hann okkur hvernig við getum tekið við gjöf Heilags Anda.

Pétur svaraði: „Sérhvert ykkar verður að snúa sér frá syndinni og láta skírast í nafni Jesú Krists til fyrirgefningar syndanna og þá fáið þið einnig þessa gjöf, heilagan anda. Kristur hét því að allir skyldu fá gjöf heilags anda, allir sem Drottinn Guð okkar kallar til sín, einnig börnin ykkar og þeir sem búa í fjarlægum löndum.”
Post 2:38-39

Til að taka við skírn Heilags Anda, þurfum við að biðja um hana – og við verðum að biðja í trú.

Fyrst þið syndugir menn gefið börnum ykkar góðar gjafir þá er víst að faðirinn á himnum gefur þeim heilagan anda sem biðja um hann.
Lúk 11:13

Margir fylgjendur Jesú í Nýja testamentinu fengu skírn Heilags Anda með handayfirlagningu.

Og Pétur og Jóhannes lögðu hendur yfir þá sem trúðu og fengu þeir þá heilagan anda.
Post 8:17

Andans gjafir

Með skírn Heilags Anda fylgja andlegar gjafir. Í frásögnum Biblíunnar af skírn Heilags Anda er sú algengasta gjöf tungutals.

Þá fylltust þeir allir heilögum anda og fóru að tala tungumál, sem þeir höfðu aldrei lært en heilagur andi gerði þeim kleift að tala.
Post 2:4

Og síðan, er Páll lagði hendur á höfuð þeirra, kom heilagur andi yfir þá og þeir töluðu í tungum og spáðu – fluttu boðskap frá Guði.
Post 19:6

Vald til að vitna

Jesús lofaði að fylla okkur með Heilögum Anda svo við getum verið áhrifarík vitni. Heilagur Andi eflir okkur til að boða fagnaðarerindið hvert sem við förum.

En þegar heilagur andi kemur yfir ykkur, þá munuð þið fá djörfung og kraft til að vitna um dauða minn og upprisu fyrir íbúum Jerúsalem, Júdeu, Samaríu – já, öllum heiminum.”
Post 1:8

Hagnýting

Hefurðu iðrast synda þinna?

Hefurðu sett traust þitt eingöngu á Krist fyrir sáluhjálp?

Hefurðu tekið niðurdýfingarskírn síðan þú iðraðist? Viltu taka niðurdýfingarskírn?

Hefurðu tekið við skírn Heilags Anda? Viltu að einhver biðji með þér um að fá skírn Heilags anda?

6. Iðrun
Ný stefna

Pétur svaraði: „Sérhvert ykkar verður að snúa sér frá syndinni og láta skírast í nafni Jesú Krists til fyrirgefningar syndanna og þá fáið þið einnig þessa gjöf, heilagan anda.“
Post 2:38

Að keyra bíl í ranga átt niður einstefnugötu er fíflalegt og hættulegt. Sumir keyra í ranga átt vegna vankunnáttu; aðrir þegar þeir eru í uppreisnarhug. Það er til andleg samlíking. Hvort sem það er vegna vankunnáttu eða í uppreisn erum við öll á hættulegri einstefnugötu sem mun að lokum leiða til eilífðs aðskilnaðar frá Guði. Þangað til við snúum við (iðrumst) og byrjum að fylgja Kristi, er hvert skref sem við tökum skref í ranga átt – skref í burtu frá Guði.

Iðrun, hryggð og ávöxtur

Raunveruleg iðrun byrjar þegar syndir okkar virkilega hryggja okkur. Þessi hryggð, sem er Guði að skapi, kemur ekki með neinar afsakanir, tekur fulla ábyrgð og kennir ekki öðru fólki, samfélaginu eða kringumstæðum um. Hún viðurkennir að okkar synd er fyrst og fremst gegn Guði. Þessi hryggð skapar raunverulega iðrun og breytt líf.

Stundum notar Guð hryggð okkar til að leiða okkur frá syndinni og til eilífs lífs og þá verður hún okkur til blessunar. Sönn iðrun fylgir þó ekki hryggð heimsins og þess vegna veldur hryggð heimsins dauða.
2Kor 7:10

Þá játaði ég synd mína fyrir þér og duldi ekki sekt mína en sagði: „Ég vil játa afbrot mín fyrir Drottni.“ Og þú afmáðir syndasekt mína.
Sál 32:5

Hryggð sem er af heiminum býr hins vegar aðeins til afsakanir fyrir það sem gerðist. Hryggð sem er Guði að skapi er þegar við höfum brostið hjarta yfir því að hafa syndgað gegn heilögum Guði. Aftur á móti er hryggð af heiminum þegar við erum svekkt yfir því að hafa náðst eða yfir því að þurfa að taka afleiðingum synda okkar. Megin munurinn á hryggð sem er af heiminum og hryggð sem er Guði að skapi er ávöxtur hryggðarinnar. Hryggð sem er af heiminum framleiðir aldrei breytt líf sem ávöxt, heldur aðeins andlegan dauða.

Ég hvatti alla til að snúa sér frá syndinni og til Guðs og sanna afturhvarf sitt með því að ástunda góð verk.
Post 26:20

Áður en þið látið skírast verðið þið að sýna í verki að þið hafið snúið ykkur frá syndinni.
Mat 3:8

Iðrun og fyrirgefning

Dæmisagan af týnda syninum í Lúkasarguðspjalli 15:11-24 er falleg lýsing af sannri iðrun. Týndi sonurinn áttar sig á mistökum sínum, snýr baki við fíflskunni og snýr aftur til föðurs síns. Hann tekur 180° beygju og gengur burt frá fyrra lífi sínu af synd og uppreisn. Faðir hans fyrirgaf honum fyrir mistök hans og tók aftur á móti honum. Á sama hátt er faðir okkar á himnum trúfastur okkur og fyrirgefur okkur þegar við snúum til hans og iðrumst.

Breytið nú um hugarfar og gerið iðrun. Snúið ykkur til Guðs, svo að hann geti hreinsað burt syndir ykkar. Hann getur gefið ykkur endurnýjunartíma og sent ykkur Jesú á ný, konunginn, sem ykkur hafði verið heitinn.
Post 3:19-20

Hefur þú lent í að fá blett á stuttermabolinn þinn sem fer ekki úr í þvotti? Ímyndaðu þér blettahreinsi sem myndi ekki aðeins eyða blettinum heldur einnig gera bolinn eins og nýjann aftur. Það er það sem gerist þegar við iðrumst og tökum á móti Jesú sem frelsara lífs okkar. Hann hreinsar ekki aðeins blettina af sektarkennd og skömm frá synd af hjarta okkar. Hann gefur okkur nýtt hjarta.

En ef við játum syndir okkar fyrir Guði, getum við treyst því að hann fyrirgefi þær og hreinsi okkur af öllu ranglæti.
1Jóh 1:9

Mikilvægi þess að fyrirgefa öðrum

Líkt og þegar við fáum fyrirgefningu fyrir syndir okkar frá Guði, segir hann okkur að fyrirgefa öðrum sem hafa syndgað gegn okkur.

Þá kom Pétur til hans og spurði: „Herra; hve oft á ég að fyrirgefa þeim sem syndgar gegn mér? Sjö sinnum?“„Nei, sjötíu sinnum sjö, – endalaust!“ svaraði Jesús.
Mat 18:21-22

En ef við neitum að fyrirgefa öðrum kennir Biblían okkur að við verðum beisk við hvert annað og að það leiði til mikilla vandræða.

Gefið gætur hvert að öðru, svo að þið missið ekki af blessun Guðs. Gætið þess að verða ekki beisk hvert við annað, því að beiskjan er trúnni til mikils tjóns.
Heb 12:15

Engin eftirsjá

Iðrun snýst um að snúa frá synd og snúa til Guðs. Það merkir að við hættum að leggja traust okkar á okkar verk og trúarlegar athafnir, heldur byrjum að treysta aðeins Kristi. Við vorum á leið í ranga átt; núna erum við á leið í rétta átt. Við vorum að hlaupa frá Guði; núna erum við að ganga með honum. Iðrun er upphafspunktur nýs lífs. Iðrun færir okkur af hlaupabrettinu sem sjálfhverft líf er og setur okkur á brautina sem felur í sér frábæran tilgang Guðs fyrir líf okkar. Að snúa sér til Guðs merkir að líta ekki um öxl og hafa enga eftirsjá.

Stundum notar Guð hryggð okkar til að leiða okkur frá syndinni og til eilífs lífs og þá verður hún okkur til blessunar. Hryggð hinna er hins vegar ekki sú sem fylgir sannri iðrun og forðar því ekki frá eilífum dauða.
2Kor 7:10

Hagnýting

Er líf þitt á nýrri braut?

Eru einhver syndug svið í lífi þínu sem eru ennþá áskorun?

Eru svið í lífi þínu sem innihalda mikla freistingu eða áframhaldandi veikleika sem þú þarfnast bænar fyrir?

Eru einhverjar syndir sem þú hefur snúið þér frá en finnur ennþá fyrir fordæmingu* yfir?

<details class="wp-block-details is-layout-flow wp-block-details-is-layout-flow"><summary>Hvað er fordæming?</summary>

Fordæming er sekt, skömm og að upplifa sakfellingu. Heilagur Andi gefur sannfæringu sem leiðir til iðrunar, gleði og nýs lífs. Fordæmingin kemur frá óvinum og leiðir til skammar, örvæntingar og þess að þú vilt fela þig fyrir Guði. Biblían talar um fordæmingu á nokkrum stöðum, t.d. Róm 8:1, 1Jóh 1:9 (óbeint), Sál 103.12 (óbeint).

</details>

5. Drottinvald
Nýr meistari

Ég lýsi því hér með yfir við alla í Ísrael að Guð hefur gert þennan Jesú, sem þið krossfestuð, bæði að Drottni og Kristi!
Post 2:36

Drottinvald er eitt af megin boðum Biblíunnar. Vísað er til Jesú sem drottinn 100 sinnum í Postulasögunni og 622 sinnum í öllu Nýja testamentinu, á meðan aðeins er vísað til hans sem frelsara 2 sinnum í Postulasögunni og 24 sinnum í Nýja testamentinu. Biblían leggur gríðarlega áherslu á hugmyndina um drottinvald. Drottinn þýðir meistari, sá sem hefur ákvörðunarréttinn, sá sem tekur ákvarðanirnar.

Drottinvald og sáluhjálp

Upphafspunktur sáluhjálpar er viðurkenning þess að Jesús er Drottinn. Að játa að Jesús sé Drottinn gefur í skyn undirgefni til drottinvalds hans á öllum sviðum lífsins. Ef Jesús er ekki Drottinn alls, þá er hann einfaldlega ekki Drottinn. Við getum ekki valið að meðtaka hann sem frelsara en ekki sem Drottinn. Sáluhjálp er tilboð sem snýst um allt eða ekkert.

Ef þú játar með munni þínum að Jesús Kristur sé Drottinn þinn og trúir í hjarta þínu að Guð hafi reist hann upp frá dauðum, þá muntu frelsast.
Róm 10:9

Drottinvald krefst hlýðni

Það er ætlast til þess að hver sem játar Krist sem Drottinn sinn geri það sem hann segir. Vitsmunaleg trú og tóm játning er ekki nóg. Ef við játum Krist sem Drottinn okkar ætti lífsstíll okkar að sýna fram á það.

Hvers vegna kallið þið mig „Herra” en viljið svo ekki hlýða mér?
Lúk 6:46

<details class="wp-block-details is-layout-flow wp-block-details-is-layout-flow"><summary>Herra og Drottinn</summary>

Biblíuþýðingar nota ýmist Herra eða Drottinn. Yfirleitt er merkingin sú sama, eins og hér fyrir ofan. Maður á mann efnið notar Lifandi Orð Biblíuþýðinguna þar sem kostur er.

</details>

Ekki eru allir guðræknir, sem tala guðrækilega. Þeir ávarpa mig: „Herra” – en munu samt ekki komast til himins, heldur aðeins þeir sem gera það sem faðir minn á himninum vill að þeir geri.
Mat 7:21

Drottinvald byrjar í hjartanu

Að vera undirgefin Kristi sem drottni snýst ekki um að fylgja röð af trúarlegum reglum og hefðum, heldur snýst drottinvald um hjartað. Drottinvald byrjar sem innri undirgefni hjartans. Ef hún er sönn, mun hún að lokum birtast sem ytri hlýðni.

Takið öllu með ró og stillingu og treystið Drottni, Jesú Kristi.
1Pét 3:15

Drottinvald er stöðug ganga með Guði

Við byrjum okkar kristna líf með því að viðurkenna að Jesús er drottinn. Við verðum að halda áfram að ganga undir hans drottinvaldi allt okkar líf. Drottinvald snýst ekki um að eiga eina upplifun með Guði, heldur um að mynda ævilanga göngu með Guði. Því meira sem við þekkjum hann, því meira felum við líf okkar honum í hendur.

Nú skuluð þið, sem tókuð á móti Kristi, einnig treysta honum til að ráða fram úr vandamálum líðandi stundar og lifa í stöðugu samfélagi við hann.
Kól 2:6

Hagnýting

Eru einhver staðir í þínu lífi sem þú hefur ekki enn lagt undir drottinvald Jesú Krists?

Eru sambönd þín við aðra undir hans drottinvaldi?

Eru fjármálin þín undir hans drottinvaldi?

Er tími þinn undir hans drottinvaldi?

4. Sáluhjálp
<details class="wp-block-details has-base-background-color has-background is-layout-flow wp-block-details-is-layout-flow"><summary>Hvað merkir sáluhjálp?</summary>

Sáluhjálp er gamalt íslenskt orð og ágæt þýðing á enska orðinu salvation. Það þýðir björgun eða lausn frá synd eða illsku. Synd er allt sem brýtur gegn því hver Guð er og vilja hans.

</details>

Nýtt upphaf

Sá sem verður kristinn verður nýr maður. Hann er ekki lengur sá sami því hann hefur eignast nýtt líf!
2Kro 5:17

Ný sköpun. Nýtt upphaf. Það eru góðar fréttir fyrir alla sem hafa einhvern tímann óskað þess að geta byrjað upp á nýtt.

Áður en við getum hins vegar lært að meta þessar góðu fréttir verðum við að skilja fyllilega hvers vegna við þörfnumst nýs upphafs.

Af hverju þurfum við að verða ný sköpun? Hvers vegna þörfnumst við frelsis?

Vandinn: Aðskilnaður vegna syndar okkar

Það er ómælanleg gjá sem aðskilur Guð og mann. Ástæða þessa eilífa aðskilnaðar milli Guðs og manns er synd.

Hefur þér einhvern tímann fundist þú fjarri Guði? Flestir hafa upplifa það. Að finna sig fjarri Guði er mjög algengt.

Margir sem finna þennan víðáttumikla aðskilnað gera ráð fyrir að ef þeir aðeins hugleiði betur, fræðist betur um átrúnað sinn, eða einfaldlega stígi inn í helgidóm, þá komist þeir nær Guði.

Þar sem aðskilnaðurinn frá Guði er ekki líkamlegur eða vitsmunalegur, þá getur hvorki hugleiðing né þekking komið okkur nær Guði. Hvað veldur þá aðskilnaðinum milli Guðs og manns?

Sjá, hönd Drottins er eigi svo stutt að hann geti ekki hjálpað og eyra hans ekki svo dauft að hann heyri ekki. Nei, sekt yðar skilur yður frá Guði yðar, syndir yðar hylja auglit hans svo að hann hlustar ekki á yður.
Jes 59:1-2

Aðskilnaðurinn milli Guðs og manns er siðferðislegur aðskilnaður. Guð er heilagur; maðurinn er það ekki. Guð er góður; maðurinn er það ekki. Guð er réttlátur; maðurinn er það ekki.

Allir menn hafa syndgað; þar af leiðandi, bíður allra eilífur aðskilnaður frá Guði. Allir munu þurfa að taka afleiðingum syndarinnar, sem er eilífur dauði.

Allir hafa syndgað – óhlýðnast Guði og skortir dýrð hans…
Róm 3:23

Laun syndarinnar eru dauði en óverðskulduð gjöf Guðs til okkar er eilíft líf í Kristi Jesú, Drottni okkar og frelsara.
Róm 6:23

Lausnin: Syndafórn Guðs og staðgengill

Réttlæti Guðs krefst fórnar fyrir synd mannsins. Jesús Kristur varð þessi fórn og greiddi sektina fyrir synd okkar á krossinum.

Þar sem Guð er heilagur, réttsýnn og réttlátur gat hann ekki látið syndinni óhengt. Hann er fullur kærleika og meðaumkunar og vildi því ekki aðskilnað mannkynsins frá honum að eilífu. Hin guðlega lausn á þessu vandamáli var að Jesús, sonur Guðs, yrði að þessari syndafórn.

Þá hefði hann orðið að deyja margsinnis allt frá því að heimurinn varð til. Nei, það hefði verið óhugsandi! Hann kom í eitt skipti fyrir öll, á hinum síðustu tímum, til að brjóta vald syndarinnar á bak aftur að eilífu. Það gerði hann með því að deyja fyrir okkur. Eins og það liggur fyrir manninum að deyja einu sinni og koma síðan fyrir dóminn, þannig dó Kristur líka einu sinni sem fórn fyrir syndir margra. Eftir það mun hann koma á ný, ekki til að deyja fyrir syndir, heldur til að flytja þeim hjálpræði sitt sem hans bíða.
Heb 9:26-28

Hvað gerðist nákvæmlega á krossinum? Með dauða Jesú á krossi, tók hann okkar stað og okkar refsingu á sig. Hann skipti út réttlæti sínu fyrir synd okkar. Hann tók bölvun okkar og gaf okkur blessun sína.

Jesús einn var hæfur til að greiða sektina fyrir synd mannsins og að brúa bilið milli Guðs og manns, vegna þess að hann lifði lífi án syndar.

Guð lagði syndir okkar á Krist sem var syndlaus en í staðinn úthellti hann kærleika sínum yfir okkur.
2Kor 5:21

Nú hefur Kristur hins vegar keypt okkur laus undan dómi þessa vonlausa lagakerfis með því að taka á sig bölvunina sem fylgdi óhlýðni okkar. Það gerði hann á krossinum og það minnir ykkur eflaust á orð Biblíunnar: “Bölvaður er hver sá sem á tré hangir.”
Gal 3:13

Afleiðingin: Sáluhjálp okkar og sáttargjörð

Kristur dó á krossinum svo við gætum meðtekið fyrirgefningu synda okkar, eignast sátt við Guð, og eilíft líf.

Við höfum öll syndgað gegn heilögum og réttlátum Guði. Sektin fyrir syndina er eilífur aðskilnaður frá Guði í Helvíti. Guð er réttlátur og verður að refsa syndinni.

Hann er líka kærleiksríkur og vill ekki að við glötumst um eilífð. Þess vegna sendi hann son sinn, Jesú Krist, til að greiða sektina fyrir synd okkar með því að deyja á krossinum.

Þar sem Jesús var án syndar, gat dauðinn ekki haldið honum. Hann reis frá dauðum á þriðja degi. Í Kristi, finnum við fyrirgefningu synda okkar og eilíft líf.

Í honum erum við réttlætt frammi fyrir Guði og eignumst nýtt líf sem börn hans.

Því að svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf sinn eingetinn son, til þess að hver sem trúir á hann glatist ekki, heldur eignist eilíft líf.
Jóh 3:16

Kærleikur hans er svo takmarkalaus að hann tók burt allar syndir okkar með dauða sonar síns og frelsaði okkur.
Ef 1:7

Nú tilheyrið þið Kristi Jesú! Þótt þið væruð áður fyrr langt frá Guði, eruð þið nálæg honum nú. Allt er það því að þakka sem Jesús Kristur gerði fyrir ykkur með dauða sínum.
Ef 2:13

Viðbrögðin: Að meðtaka gjöf Guðs í trú

Við meðtökum sáluhjálp þegar við hættum að treysta á okkur sjálf og setjum traust okkar á það sem Kristur gerði fyrir okkur.

Sáluhjálp er afleiðing náðar Guðs. Hún er byggð á því sem Jesús gerði fyrir okkur á krossinum. Hún hefur ekkert að gera með það sem við gerum fyrir hann.

Við getum ekki bjargað okkur sjálfum eða unnið okkur inn viðurkenningu Guðs með góðum verkum. Við frelsumst fyrir náð Guðs þegar við áttum okkur á þörf okkar fyrir frelsara, snúum frá synd, og tökum á móti Jesú Kristi sem Drottni okkar og frelsara. Þannig setjum við traust okkar um sáluhjálp á hann einan.

Ef þú játar með munni þínum að Jesús Kristur sé Drottinn þinn og trúir í hjarta þínu að Guð hafi reist hann upp frá dauðum, þá muntu frelsast. Trú mannsins veldur því að Guð lítur á hann sem hreinan og syndlausan. Með munni sínum segir hann síðan öðrum frá trú sinni og staðfestir þannig að hann sé hólpinn.
Róm 10:9-10

Það var miskunn Guðs að þakka að þið frelsuðust með því að trúa á Krist. Trú ykkar er ekki ykkur að þakka, hún er líka gjöf frá Guði. Hjálpræði Guðs er ekki laun fyrir góðverk ykkar og þess vegna getur heldur enginn þakkað sjálfum sér það.
Ef 2:8-9

Hagnýting

Treystirðu Kristi einum fyrir sáluhjálp þinni en ekki eigin verðleikum?

Hefurðu snúið þér frá meðvitaðri synd?

Hefur þú játað Jesú sem Drottin yfir lífi þínu?

Viltu fylgja honum og hlýða það sem eftir er lífs þíns?

Bæn um sáluhjálp

Himneski faðir, ég viðurkenni að aðskilnaðurinn á milli okkar er vegna syndar minnar.

Ég játa að ég hef syndgað og skorti tilfinnanlega dýrð þína. Ég þakka þér fyrir að senda son þinn, Jesú, til að greiða gjaldið fyrir synd mína.

Ég trúi að hann hafi dáið á krossinum fyrir mig. Ég trúi að þú hafir reist hann frá dauðum. Ég iðrast synda minna og ég bið þig að fyrirgefa mér og hreinsa mig.

Ég vil snúa mér frá öllu því sem Biblían kallar synd og taka við Jesú sem Drottni mínum og frelsara. Hjálpaðu mér að elska, þjóna og hlýða þér það sem eftir er lífs míns. Í Jesú nafni…Amen!

Nýtt líf

Ef þú hefur beðið þessarar bænar í einlægni, lofar Biblían því að hið gamla sé horfið og að nýtt sé komið í staðinn!

Í næstu sex kennslum muntu kynnast einhverju af því nýja sem nú þegar er komið.